Færsluflokkur: Tölvur og tækni

iPhone 3G

iphone3g3Verð að viðurkenna mig drullu langar í svona síma. okey okey ég hef ekki hugmynd um af hverju mig langar í svona en svona er þetta bara. Mér finnst bara svo sniðugt að vara með svona. Er ekki bara búið að heilaþvo mann?maður verður að eiga allt: 

iPhone              (ekki komið en kemur)              
iPod                  check
iMac tölva         check

 Gæti talið upp í allan dag upp hluti sem maður er búinn að kaupa, á eftir að kaupa og það sem manni langar í. Hér er góð grein um iPhone 3G. Hey já svo má ekki gleyma psp úfff það er hægt að gleyma sér þar ójá.  

 

 

 

 

Eitt í lokinn fyrst það er föstudagur:

Blind fullur maður labbar upp að barþjóninum og segir "Ég skal veðja við þig upp á 50 þúsund" Barþjónninn verður forvitinn og spyr "nú hvernig veðmál?" þá setur maðurinn tómt bjórglas á borðið og segir "Sko ég þarf að pissa og ég skal pissa í glasið úr fimm metra færi og það fer ekki dropi útfyrir glasið" Barþjónninn hugsar sig ekki um og samþykkur veðmálið. Maðurinn pissar og pissar á alla veggi yfir alla drykkina og á þjóninn og það fór ekki einn dropi í glasið. Þegar þjónninn rukkaði manninn bað maðurinn hann um að bíða í smá stund og settist til vina sinna. Svo kom maðurinn og rétti barþjóninum 50 þúsund krónur. Þá spurði barþjónninn manninn hvað hann hefði verið að gera hjá vinum sínum. Þá sagði sá fulli "Sko ég var að veðja við þá upp á 200 þúsund að ég gæti pissað yfir allan barinn og á þig án þess að þú yrðir reiður"

Einu sinni var maður sem grunaði að konan hans væri að halda framhjá sér. Hann var í vinnunni bað vinkonu sína að fara heim til sín. Þegar hún var kominn heim til hans hringdi hún í hann.
Maðurinn:"Farðu upp og gáðu hvort það sé einhver uppi í svefnherbergi"
Bað maðurinn vinkonu sína um að gera. Konan fer upp og gáir.
Vinkonan: Jájá það er einhver þarna inni.
Maðurinn: Já og hvað, eru þau að ríða?
Vinkonan: Já já þau eru að ríða.
Maðurinn: heyrðu haglabyssan mín er niðri, farðu niður náðu í hana og farðu upp og skjóttu upp í loftið til að hræða kallinn.
Hún gerði það og kom svo aftur í síman.
Maðurinn: Jæja...?
Vinkonan: Ég fór inn og skaut upp í loftið.
Maðurinn: Já og hvað gerði hann?
Vinkonan: Hann stökk út um gluggan.
Maðurinn: stökk hann útum gluggan?
Vinkonan: já og lenti í sundlauginni.
Maðurinn: Ha!? sundlauginni?
Vinkonan: Já það var ekkert vatn í henni og hann er bara steindauður.
Maðurinn: Við eigum ekki sundlaug fórstu ekki í hús 74?
  

Um bloggið

Ágúst Malmkvist Árnason

Höfundur

Ágúst Malmkvist Árnason
Ágúst Malmkvist Árnason
Hef gaman af því að tuða um ekkert, hef líka gaman af ferðalögum.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband